Núna er ég búinn að blogga í hátt í 10 ár. Samt hefur eiginlega aldrei neinn lesið það f. utan vini mína, sem er synd þar sem bloggið mitt er óumdeilanlega eitt af þrekvirkjum íslenskrar bókmenntasögu.
En viti menn! Þar sem bloggið er núna tengt við feisbúkk fæ ég heldur fleiri heimsóknir en áður. Þannig að þegar ég finn hjá mér hvöt til að blogga en letin verður hvötinni yfirsterkari ætla ég bara að endurvinna gamlar færslur. Það hefur enginn lesið þær hvort sem er.
17.11.2008
“I. Fyrir rúmu ári skrifaði ég bloggfærslu þar sem ég hæddist að Axl Rose fyrir að vera frekar leim gaur og vísaði þar í viðtal við Kurt Cobain máli mínu til stuðnings. Núna var ég að sjá að piltur að nafni Alex Skúli Einarsson hafði rambað á umrædda færslu með því að gúgla setninguna “hata Axl Rose” og hafði skilið eftir komment sem hljóðar svo:
“hey well ég gæti ekki verið meira ósammála þér þar sem kurt cobain var sækó fífl sem samdii ömurlega tónlist og gerði rétt með því að skjóta sig en axl rose er geðveikur textasmiður sem er cool þá hann sé í ömmunærbuxum á sviði (sem enginn annar gæti gert og sammt verið cool) svo please farðu og litterly ríddu þínu egin andliti.”
Fyrst og fremst vil ég hrósa Alexi Skúla fyrir að hafa skrifað undir fullu nafni, sem er líklega fátítt í þeim flokki blogg-kommenta þar sem viðmælanda er skipað að hafa mök við eigið andlit… en þýðir þessi hnífbeitta atlaga að orðum mínum annars ekki að ég sé núna officially orðin “umdeildur þjóðfélagsrýnir”?
II. Ég vil þakka þeim Brumma og Kraga fyrir eðalpartí á laugardaginn.
III. Fyrstu afleiðingar kreppunnar: það er hvergi hægt að fá almennilegan Ben & Jerrys ís.”