Bjöllan rokkar Hörpuna. Ásamt Jónasi Sen. Á sembal.

Í gær fór ég að sjá Björk í Hörpunni. Það var geðveikt. Hún var með allskyns skran á sviðinu, trylltan slagverksleikara, tölvugaur, kvennakór og Jónas Sen. Nýju lögin voru líka töff að mestu. Best þótti mér samt þegar hún tók Náttúra og Declare Independence. Ég er mjög veikur fyrir lögum sem byggja bara á trylltum tölvutöktum og einhverjum öskrum.

Allt var þetta frábært, fyrir utan eitt lag í miðju settinu, sem var versta lag sem ég hef heyrt. Í því glamraði Jónas Sen handahófskenndar nótur á sembal á meðan Björk gaulaði eitthvað yfir. Mér leið eins og Björk væri að gera grín að mér. En svo fór ég heim og hlustaði á lagið á netinu og fannst það ljómandi fínt í stúdíóútgáfunni (lagið heitir Vertebrae by Vertebrae og er á Volta).

Það kann að hafa verið því að á tónleikunum var lagið spilað á sembal. Semball (á ensku kallað harpsichord) er versta hljóðfæri í heiminum. Það skiptir ekki máli hversu gott lag kann að vera, um leið og það er spilað á sembal verður það samstundis ömurlegt. Ímyndið ykkur öll uppáhalds píanólögin ykkar, og ímyndið ykkur hvernig þau væru ef þau væru spiluð á sembal. Nákvæmlega.

Semball er þó ekki eina hljóðslys veraldar. Ég hef alltaf velt fyrir mér afhverju hræðileg hljóðfæri ná útbreiðslu. Afhverju þeir sem smíða þau sjá ekki sóma sinn í því að tortíma þeim um leið og þeir uppgötvi þann ófögnuð sem þeir hafi skapað. Kannski vilja þeir ekki að öll sú verkfræði sem fór í að smíða hljóðfærið fari til spillis? Að slík sjónarmið trompi fagurfræði, almenna sómakennd og umhyggju fyrir eyru náungans? Í þennan flokk tónaprumps falla m.a. harmonikkur, sekkjapípur og blokkflautur. Ég hef íhugað að setja saman hljómsveit sem myndi samanstanda af sembal, harmonikku, sekkjapípu og blokkflautu, bara til að sjá hvort alheimurinn myndi tortímast ef öll þessi hljóðfæri væru spiluð á sama tíma.

Ég lýsi því hér með eftir semballeikara, harmonikkuleikara, sekkjapípuleikara og blokkflautuleikara til að leika í Heljarsinfóníu Egils. Svo kannski einhvern til að taka júðahörpusóló inn á milli. Ég stefni á tónleika í Hörpunni snemma á næsta ári. Laddi verður kynnir.

 

Lag dagsins: My heart will go on á blokkflautu.

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.