I. Ég var næstum því búinn að gleyma passwordinu mínu. Þvílík synd og skömm. Engin færsla frá því í apríl. Synd og skömm, synd og skömm. Á tímabili var ég næstum því kominn á sömu skoðun og Wittgenstein; að það sem skipti raunverulega máli í lífinu væri ekki hægt að tjá eða segja með orðum. Ég hætti því að tala og skrifa í þrjá mánuði. En þá komst ég að því að það nennti enginn að leika við mig þannig að ég lét af þeirri iðju. Nú tala ég og tala líkt og enginn væri morgundagurinn
II.Á einhverjum tímapunkti hætti ég að nenna að hafa skoðanir á hlutum. Ég komst að því að heimurinn er of flókinn til að eitt sjónarhorn geti á einhvern hátt gert grein fyrir honum. Og öll sjónarmið eru að einhverju leyti rétt, það fer bara allt eftir forsendunum. Það eru alltaf milljón hliðar á öllum málum. Þeir sem þurfa alltaf að hafa sterkar skoðun á öllu eru yfirleitt óþolandi aular. En þeir sem hafa ekki skoðun á neinu eru kannski alveg jafnmiklir aular. Það er allavegana mín skoðun.
III.Ég ásamt hljómsveitinni minni gaf út plötu í júní. Það var gaman, og það er mikill meðbyr með okkur þessa dagana. Ég nenni samt eiginlega ekki að tjá mig mikið meira um það. Kaupið bara fokking plötuna.
IV. Ég er að horfa á einhverja skandínava eignast börn í sjónvarpinu. Það er frekar ógeðslegt, og fólkið er óeðlilega hamingjusamt miðað við hvað þetta er subbulegt. Einhver sköllóttur skandínavi er að grenja núna því barnið hans var að fæðast. Hann er samt soldið krúttlegur.
V. Nenna þeir sem lesa þetta að heilsa mér í kommentakerfinu fyrir neðan? Bara svo ég viti að einhver sé að lesa þetta.
lag dagsins. Fever Ray – If I Had a Heart (Fuck Buttons remix)
27.7.2010 klukkan 22:42 |
Sæll og blessaður Egill
27.7.2010 klukkan 22:58 |
Hæ Egill. Þú ert svo mikill heimspekingur.
27.7.2010 klukkan 23:01 |
hæ Egill.
nenniru að senda mér gestapóst?
28.7.2010 klukkan 0:30 |
gestapóst?
28.7.2010 klukkan 6:18 |
Hæ Egill
28.7.2010 klukkan 9:38 |
oh lestu ekki bloggið mitt?
lúði
28.7.2010 klukkan 13:51 |
Sæll Egill. Ég er enn að bíða.
28.7.2010 klukkan 21:37 |
Það skemmtilega við skoðanir er, að maður getur haft skoðun á skoðunum, og mín skoðun er að flestir hafi ekki rétt á að hafa skoðanir.
30.7.2010 klukkan 11:11 |
heils… búinn að kaupa plötuna
9.8.2010 klukkan 11:38 |
hæ. @Valli það hafa allar manneskjur rétt á frelsi og skoðunum, og blómum, og smáhundum og snakki með beinkonbragði
10.8.2010 klukkan 9:43 |
hæ!
1.9.2010 klukkan 12:46 |
Hæhæhæhæ