Archive for júlí, 2010

Telia Respons

30.7.2010

I. Auður systir er í Fréttablaðinu í dag með kjötbolluuppskrift og Nóruplögg. Ég mæli sterklega með þessum kjötbollum, þær eru geðveikar.

II. Íslenskir fjölmiðlar þjást af krónískri gúrkutíð.

III. Ég er að fara að kaupa föt á eftir í fyrsta skipti í svona ár en veit ekkert hvað ég á að kaupa. Ég er að spá í að kaupa mér bleika krínólínu. Eru þær ennþá töff?

IV. Ég komst að því um daginn að ég þekkti stelpuna sem dó á Eistnaflugi fyrir þrem vikum. Hún hét Ástríður Tómasdóttir og ég vann með henni sumarið 2006. Ég þekkti hana ekki mikið en hún virkaði afar indæl og skemmtileg og ég heilsaði henni alltaf úti á götu upp frá því, var alltaf að sjá hana á vappi. Svo sá ég hana fara með mjög flott ljóð á ljóðaslammi um daginn. En núna er hún dáin.

Í gær sá ég svo pabba hennar og systur að versla í Bónus og ég varð mjög leiður. Hvernig í fjandanum mannar maður sig upp í það að versla í Bónus eftir að hafa misst dóttur sína? Þetta er allavegana ömurlega sorglegt og ég votta aðstandendum samúð mína, þó þeir eigi eflaust aldrei eftir að lesa þetta.

Allskonar allskonar

27.7.2010

I. Ég var næstum því búinn að gleyma passwordinu mínu. Þvílík synd og skömm. Engin færsla frá því í apríl. Synd og skömm, synd og skömm. Á tímabili var ég næstum því kominn á sömu skoðun og Wittgenstein; að það sem skipti raunverulega máli í lífinu væri ekki hægt að tjá eða segja með orðum. Ég hætti því að tala og skrifa í þrjá mánuði. En þá komst ég að því að það nennti enginn að leika við mig þannig að ég lét af þeirri iðju. Nú tala ég og tala líkt og enginn væri morgundagurinn

II.Á einhverjum tímapunkti hætti ég að nenna að hafa skoðanir á hlutum. Ég komst að því að heimurinn er of flókinn til að eitt sjónarhorn geti á einhvern hátt gert grein fyrir honum. Og öll sjónarmið eru að einhverju leyti rétt, það fer bara allt eftir forsendunum. Það eru alltaf milljón hliðar á öllum málum. Þeir sem þurfa alltaf að hafa sterkar skoðun á öllu eru yfirleitt óþolandi aular. En þeir sem hafa ekki skoðun á neinu eru kannski alveg jafnmiklir aular. Það er allavegana mín skoðun.

III.Ég ásamt hljómsveitinni minni gaf út plötu í júní. Það var gaman, og það er mikill meðbyr með okkur þessa dagana. Ég nenni samt eiginlega ekki að tjá mig mikið meira um það. Kaupið bara fokking plötuna.

IV. Ég er að horfa á einhverja skandínava eignast börn í sjónvarpinu. Það er frekar ógeðslegt, og fólkið er óeðlilega hamingjusamt miðað við hvað þetta er subbulegt. Einhver sköllóttur skandínavi er að grenja núna því barnið hans var að fæðast. Hann er samt soldið krúttlegur.

V. Nenna þeir sem lesa þetta að heilsa mér í kommentakerfinu fyrir neðan? Bara svo ég viti að einhver sé að lesa þetta.

lag dagsins. Fever Ray – If I Had a Heart (Fuck Buttons remix)


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.