Archive for apríl, 2010

Enn einn dagur…

10.4.2010

I. Aðalkosturinn við það að búa í frjálsu lýðræðissamfélagi er að maður getur læst hurðinni sinni og gefið algjöran skít í það ef maður svo kys.

II. Ég horfði á frábæra mynd í gær. Hún hét Dead or Alive og fjallar um léttklæddar konur sem slást. Hún er byggð á tölvuleik. Mér fannst skrýtið að hún væri sýnd kl 00.00 þar sem markhópurinn (10 ára strákar) er að mestu farinn að sofa á þessum tíma. Ég skemmti mér þó konunglega.

III. Ég mæli með þessari ritgerð fyrir þá sem hafa sirka hálftíma aflögu.

IV. Ég er að passa tvo fiska fyrir vini mína sem eru í útlöndum. Einn þeirra er alltaf að þykjast vera dauður. Ég held hann geri það svo fólk fái samviskubit yfir því að hann sé hafður í svona litlu búri. Þeir eru annars ágætir. Rikke hefur tekið ástfóstri við þá og er alltaf að syngja eitthvað fiskalag á dönsku fyrir þá. Það þykir mér skrýtið.

V. Eins og þið sjáið er líf mitt ekki mjög viðburðarríkt þessa dagana.


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.