Archive for mars, 2010

Dauðarefsingin

8.3.2010

Í Fávitanum Eftir Dostojevskí er áhrifamikil lýsing af hugsunum manns sem er við það að vera tekinn af lífi, og hvernig öll skynjun hans á tilverunni breytist. Þetta er áhugavert þegar litið er til þess því Dostojevskí lenti sjálfur í því að hann var leiddur fyrir aftökusveit, en var náðaður á allra síðustu stundu. Ég hef oft reynt að gera mér í hugarlund hvernig það er að vita að maður er að fara að deyja, og að ekkert sem maður geri eða segi muni breyta því. Hvernig það sé að vera sviptur voninni algjörlega. Miðað við lýsingar sem ég hef lesið, þá er ég ekki frá því að það sé líklega mesta þjáning sem nokkur maður getur upplifað. Það að ákveðnar þjóðir fordæma “pyndingar” á meðan þær láta menn bíða eftir að vera drepnir er líklega mesta hræsni sem fyrirfinnst í þessum heimi. Eða bara heimska, ég veit ekki hvort.

Ég legg því til mannúðlegri dauðadómur felist í því að við dómsuppkvaðningu, þá stökkvi dómarinn á þann ákærða með skammbyssu og skjóti hann í hausinn áður en hann hefur tíma til að átta sig á hvað er í gangi. Það væri líka osom sjónvarpsefni.

lag dagsins: Bob Marley – Redemption Song


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.