Þorri frændi

Ég hef ekkert minnst á litla frænda minn hann Þorra. Það er kominn tími á það.

Þetta er Þorri, hann er sonur systur minnar. Þorri er nettur gaur og býr við hliðina á mér. Hann er tveggja mánaða gamall og á sér aðeins eitt áhugamál. Það er að pissa á fólk. Hápunktur dagsins hjá honum er þegar bleyjan er tekin af honum. Þá umbreytast allir í risastór skotmörk. Hann pissaði á mig í dag og pissaði líka á mig í síðasta mánuði. Svo pissaði hann á hausinn á pabba sínum um daginn. Það var fyndið. Ég vona að hann láti ekki af þessum góða sið og haldi áfram að pissa á fólk fram eftir aldri. Með góðu uppeldi er hægt að beina þessari iðju í jákvæðan farveg þannig að þetta verði ekki aðeins áhugamál heldur lífsstíll. Hann getur leyst öll sín vandamál með því að pissa bara á þau. Hrekkjusvínin í skólanum munu hræðast hann því þau vilja ekki láta pissa á sig. Svo kemst hann kannski á þing og verður fyrsti þingmaðurinn til að pissa á andstæðinga sína. Kannski mun hann líka hrífa fólk með sér og aðrir munu taka þetta upp eftir honum. Fólk hættir að rífast, öllum vopnum heimsins verður eytt og fólk leysir deilur með að pissa bara á hvort annað. Svo takast allir í hendur og syngja We are the world og reisa risastóra styttu af Þorra.

Honum er ætlað stórt hlutverk í lífinu, ég finn það á mér.

Ein ummæli to “Þorri frændi”

  1. Viðar segir:

    Egill, þú byrjaðir í sama lífsstíl og pissaðir á fyrstu heimahjúkkuna og nokkrum sinnum á foreldra þína en svo gafstu bara upp á þessu. Vonum að Þorri verði staðfastari í stílnum.

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.