
Skv. einhverjum baunum þá er handskrifað ritmál að deyja út. (Sjá hér) Magnað! Ég veit ekki hvort það sé gott eða slæmt, en mikið rosalega hlýtur að vera að fara um skriffæraframleiðendur akkúrat núna; Bic, Stabilo, Boxy o.s.frv. Til að viðhalda stöðu sinni þá þurfa þeir væntanlega að leggja í hræðsluáróður af einhverju tagi til að sporna við þessari þróun. Hvernig myndi það líta út, og til hvaða þátta mannlegrar heimsku myndu þeir höfða? Afturhvarf til náttúrunnar? (“Bic nota einungis náttúrulega ræktað blek. PC tölvur eru búnar til í verksmiðjum af kynbættum malasískum börnum sem eiga ekki skó.”) Handskrift gerð að siðferðislegu efni? (“Fyrsta handrit Biblíunnar var handskrifað, en Hitler skrifaði Mein Kampf á Amstrad-tölvu. Tilviljun?”) Heilsufar? (“Rannsóknir hafa sýnt að ofnotkun á Microsoft Office veldur blindu, lömun og geðveiki”) Kynlíf?(“Rannsóknir hafa sýnt að beint samhengi er á milli ritfærni og frammistöðu í bólinu”) o.s.frv. Möguleikarnir eru óteljandi. Ég er að spá í að sækja um stöðu sem spunameistari skriffæraframleiðenda.
16.3.2010 klukkan 16:38 |
handlát?
21.3.2010 klukkan 0:50 |
úff.. verð eiginlega að breyta fyrirsögninni núna