Börn á leikskólum eru yfirleitt djúpþenkjandi snillingar og það að vinna með börnum hefur kennt mér ýmislegt. Hér eru vel valdar tilvitnanir frá einu barnanna um kynjahlutverk:
“Stelpur kyssa ekki stráka, strákar kyssa stelpur!”
Þetta er t.d. sannleikur sem ég uppgötvaði ekki fyrr en ég var orðinn 16 ára.
“Stelpur eru alltaf með hausverk, en strákum illt í maganum.”
Er hægt að mótmæla þessu?
Glöggir lesendur tóku kannski eftir að ég hef bloggað um þetta áður, nefnilega árið 2006. Það skiptir samt ekki öllu máli, ég er nefnilega búinn að blogga svo lengi að ég get bara endurunnið færslur án þess að nokkur taki eftir því. Færslurnar mínar eru tímalausar, þær fjalla bara um random drasl sem er jafnrandom á öllum tímum. Hvernig ætli aulunum sem voru alltaf að blogga t.d. um fjölmiðlafrumvarpið á sínum tíma líði núna? Hah! Ekki geta þeir endurunnið. Þeir þurfa bara að skrifa nýjar og nýjar færslur og sóa þar með dýrmætu internet-bleki og heilabensíni.
Þeir fáu sem hugsanlega mögulega sjá í gegn um þessa svikamyllu mína eru þá væntanlega mínir allra hörðustu aðdáendur, og þeir eru varla að fara að gagnrýna mig fyrir nokkurn skapaðan hlut. Ha ha ha!
14.3.2010 klukkan 21:48 |
Svona tímalaust blogg er náttúrulega bara gullkista. Það hefur t.a.m. komið fyrir þegar ég er mjög andlaus í vinnunni og á að skrifa Víkverja eða einhvern pistil að ég endurvinni bara eitthvað gamalt stöff af blogginu mínu. Mjög ökónómískt.
15.3.2010 klukkan 15:50 |
já klárlega! Best er að orða allt bara nógu almennt, þá er maður í góðum málum.