Þegar ég var í menntó þá var blogg nýjasta nýtt. Allir fengu sér blogg og notuðu það til að internetast sín á milli. Svo settu bloggarar upp linka á aðra bloggara, mynduðu tengslanet, fólk fór bloggrúnta og allir voru glaðir. Það var mjög gaman að heimsækja blogg hjá fólki, það var eins og að koma í internet-heimsókn hjá einhverjum, þar sem maður fékk smá innsýn inn í hugarheim viðkomandi.
Núna er facebook komið í staðinn sem þessi félagslegi vettvangur internetsis. Í stað kósí internet-heimsókna, þá er komið eitthvað allsherjar markaðstorg þar sem fólk galar ofan í hvort annað og reynir að ná athygli með status-öppdeitum, youtube myndböndum og myndaalbúmum. Svo af einhverjum ástæðum fær maður ítarlegar upplýsingar um leiðinlega hluti. Mér gæti ekki mögulega verið meira sama hvaða internetleiki fólk er að spila (nema ef fólk er að spila jetman og reyna að slá metið mitt). Um allar trissur liggja svo yfirgefin blogg eftir áður metnaðarfulla og skemmtilega bloggara, flest með síðustu færslu árið 2007 eða 2008. Internet-dreifbýlið er orðið að internet-þéttbýli þar sem fólk er matað með niðursoðnum status-öppdeitum (þó einhverjir hafi gert status-öppdeit að listgrein, sbr. Konráð Jónsson), í stað kósíheitanna og sem einkenndu bloggin. Nútímabloggið er að mestu orðið vettvangur fyrir nöldrara. Þetta er þróun í verri átt; fyrir internetið, fyrir Ísland, fyrir mannkyn.
Ég er ekki frá því að ég sé fyrsti internet-gamlinginn sem nöldar yfir því hvað allt var betra í gamla daga.
10.3.2010 klukkan 18:43 |
Nei
10.3.2010 klukkan 18:45 |
Víst. Snautaðu burt.
10.3.2010 klukkan 18:47 |
Nei ég meina þú ert ekki einn um að finnast þetta
10.3.2010 klukkan 18:51 |
ó, ok. Ég biðst forláts.
14.3.2010 klukkan 21:56 |
Þú negldir þetta alveg með þessari samlíkingu við að fara í notalega heimsókn annars vegar og gala á torgum hinsvegar. Svo er það svo kaldhæðinslegt að bloggkúltúrinn hefur aldrei fengið meiri athygli en einmitt eftir að það hætti eiginlega að verða til og varð að einhverju moggabloggs rugli sem allir halda að sé alvöru blogg en þeir bara vita ekki….vita ekki.