Archive for janúar, 2010

Wittgenstein

20.1.2010

Ég er búinn að vera að lesa ævisögu Wittgenstein eftir Ray Monk undanfarna daga sem rekur lífshlaup hans og tvinnar um leið inn í frásögnina hugmyndir hans á snilldarlegan hátt. W. var frekar sérstakur maður, en mér finnst hugmyndirnar hans allar frábærar, sérstaklega þær sem hann hélt fram á seinni hluta ferilsins (ferillinn hans skiptist í tvo hluta, á “seinni hlutanum” hafnaði hann sjálfur öllu sem hann hafði sagt á þeim fyrri). Umfjöllunarefni hans var um alla tíð fyrst og fremst grundvöllur hugsunar okkar, tungumálið, og hann setti fram afar áhugaverðar hugmyndir í þeim efnum sem hafa haft gríðarleg áhrif innan heimspeki og víðar.

Mér finnst í raun skrýtið hversu lítið er fjallað um tungumálið, og mér finnst raunar að í grunn- og menntaskólum landsins ætti að vera einhverskonar “tungumálakennsla”, sem fælist ekki bara í málfræði, heldur því hvernig tungumálið virkar á mun dýpra leveli (rökfræði er einn þáttur í þessu). Tungumálið er það verkfæri sem skilur okkur frá öðrum kvikindum, og er ástæða þess að við erum yfirburðarskepna í heiminum. Það er þó ekki fullkomið, og hefur sínar takmarkanir, og það getur reynst erfitt að skilja í hverju nákvæmlega þessar takmarkanir felast. Ég held að ítarleg rannsókn á tungumálinu, og meðvitund um þessar takmarkanir sé í mörgum tilfellum mun heppilegri leið til að leysa t.d. úr deiluefnum (þesskonar rannsókn er eitt af meginviðfangsefnum nútímaheimspeki, fyrir þá sem eru ennþá að velta því fyrir sér hvað heimspekingar geri eiginlega).

Eins fúlt og það er, þá eru ákveðnir þættir tilverunnar sem eru einfaldlega handan tungumálsins. M.ö.o. á ég við að það er hreinlega ekki hægt að ræða um þannig að raunverulegt gagn sé af. Svo dæmi sé tekið þá tel ég að ákveðin siðferðisleg álitaefni falli þennan hóp. Að ætla að halda því fram að “rökræður” um hluti eins og fóstureyðingar, líknardráp og dauðarefsingar hjálpi eitthvað við að sætta ólík sjónarmið er einhver mesti misskilningur sem fyrirfinnst á okkar tímum. Ekki bara því fólk sé svo rooosalega ósammála heldur því þetta eru deilumál sem eiga sér grundvöll handan við rökræður, og í vissum skilningi handan við tungumálið.

En ég nenni ekki að fara nánar út í það hér, ég á að vera að vinna eitthvað verkefni.

ps. Serbía sökkar


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.