Archive for janúar, 2007

11.1.2007

í sambandi við big lebowski aftur.. þá er þetta að öllum líkindum uppáhaldskvótið mitt í heiminum

Jesus Quintana: You ready to be fucked, man? I see you rolled your way into the semis. Dios mio, man. Liam and me, we’re gonna fuck you up.

The Dude: Yeah, well, you know, that’s just, like, your opinion, man.

11.1.2007

jæja vorönnin byrjar formlega hjá mér eftir 13 mínútur. Ég er að fara í frumspeki. Ég nenni því ekki.

Ég nenni heldur ekki að flytja.

lag dagsins: Guð stokkaði á sér fæturna

10.1.2007

Þetta hefur líklega verið sagt svona þúsund sinnum áður… en djöfull er the big lebowski fyndin mynd.

ps. ég nenni ekki að flytja

9.1.2007

Við erum að fara að flytja einhverntíman í lok mars. Fokking rugl.
Ég er allavegana að spá í að flytja einhvert einn í sumar. Hver vill koma að leigja með mér?

4.1.2007

ahhh ég gleymdi áramótaheitunum mínum. ok..

1. Vera töff
2. Hætta að vera blankur
3. ****** *****, ****** *****. (Ritskoðað sökum ólögleika)
4. Þjálfa kettina mína til að pissa í klósett.
5. **** ** ** **************. (Ritskoðað sökum dónaleika)
6. Hætta að ritskoða sjálfan mig.
7. Hætta að reyna að vera fyndinn með mótsagnarkenndum bloggfærslum.

3.1.2007

jæja ég kom mér loksins inn í þessa Prison Break þætti og er orðinn alveg húkkt.. mjög spennandi þættir. Það fer reyndar soldið í taugarnar á mér hvað 75% af persónunum í þáttunum eru algjörir skíthælar, og hvað það er alltaf verið að drepa alla… maður missir trúnna á mannkyninu.
En djöfull er Michael Scofield töff. Sérstaklega í Season 2. Afhverju er ég ekki svona töff? Ég ætla líka að tattúera kort af einhverju á líkamann minn og draga andan alltaf geðveikt djúpt áður en ég tala.


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.