Egill er búinn í prófum
Archive for desember, 2006
11.12.2006
pff.. ruglið í Eggerti að reka Pardew… svei…
bölvað vesen á íslendingum alltaf hreint
Liðið fellur, þetta verður annar Stoke brandari og Íslendingar verða svo bannaðir í austurhluta London eftir nokkur ár.
En jæja fyrst þetta er búið og gert, hverjum finnst að Magnús Ver ætti svo að vera skipaður sem næsti knattspyrnustjóri?
8.12.2006
“Harry, I’m going to let you in on a little secret. Every day, once a day, give yourself a present. Don’t plan it. Don’t wait for it. Just let it happen. It could be a new shirt at the men’s store, a catnap in your office chair, or two cups of good, hot black coffee.” – Dale Cooper
ég hélt aldrei að ég myndi segja þetta, en… djöfull er ég að drekka gott kaffi
annars fór ég í gær á lokahóf stjórnmálaheimspekinnar á Pravda sem Vilhjálmur Árnason (kennarinn minn) hafði skipulagt. Þar voru Steingrímur J. og Birgir Ármannson að ræða um stjórnmálaskoðanir sínar í tengslum við nýútkomna bók Steingríms. Þeir voru báðir mjög skemmtilegir, og ég fékk að spyrja þá misgáfulegra spurninga… ég bjóst aldrei við því að ég myndi hafa gaman af þriggja tíma stjórnmálaumræðu.. en svona getur maður komið sjálfum sér á óvart.
lag dagsins: Pixies – All Over The World
6.12.2006
Fokking jólasveinar
Litla systir mín er 12 ára í dag. Til hamingju systir, til hamingju.
ég var í munnlegu prófi í stjórnmálaheimspeki í dag.
Fleira var það ekki.
lag dagsins: Belle & Sebastian – Le Pastie De La Bourgeoisie
3.12.2006
hahahah vá…
Thierry Henry ætti að fá nóbelsverðlaunin í fávitaskap fyrir þetta
Finnst þetta samt besta kvótið:
“He kept repeating that same bit over and over. ‘You’re 40, you’re 40′.”
Er einhver annar en ég að sjá þetta ljóslifandi fyrir sér?
ps. hver vill koma með mér á jólahlaðborð?
ég er svangur..