Archive for desember, 2006

31.12.2006

Jæææja gott fólk.. þá er árið liðið blablabla… góðar stundir blablablaaaa

á heildina litið var ég nokkuð sáttur við 2006.. kannski fulldöll á köflum og lítið í gangi, en það er kannski bara hluti af því að verða gamalmenni..

Það voru þó nokkrir hápunktar..
* Hress ferð til Boston,
* Hress Hróaskelda,
* karókí í Danmörku,
* akstur á ofvaxinni slátturvél,
* við eignuðumst tvær læður,
* ég leysti heila sudoku bók,
* gerðist félagslífsgaur,
* fór í mína fyrstu vísindaferð,
* deitaði sæta stelpu,
* Chelsea urðu deildarmeistarar
* Liverpool urðu ekki deildarmeistarar
* Liverpool unnu ekki meistaradeildina
* Liverpool unnu ekki deildarbikarinn
* eignaðist telecaster,
* eignaðist Yamaha P120 píanó,
* eignaðist Vox AC15 magnara,
* Gaf út blað
* var almennt töff

þar að auki var það mun betra en sá epíski brandari sem 2005 var.

Það pirrar mig samt hvað þessi ár líða alltaf hraðar og hraðar… þetta ár byrjaði á partíi hérna heima hjá mér og mér finnst eins og það hafi verið í síðasta mánuði.. svo verður líklega komið 2007 á morgun

en jæja, sé ykkur vonandi öll hjá Krumma í kvöld.
Jei.

Gleðilegt ár! :)

29.12.2006

ái…

26.12.2006

Húrra fyrir jólunum. Þau eru best. Aðfangadagskvöld var æði. Jóladagur líka. Vil þakka fólki fyrir gjafir o.s.frv. Ég er fullur af gleði og hamingju þessa dagana.

Er annars ekki stemmari fyrir áramótapartíinu hjá Krumma?

24.12.2006

Jæja hún Sabor virðist greinilega hafa skoðað bloggið mitt og tekið síðustu færslu eitthvað til sín.
Allavegana tók ég strax eftir mikilli hugarfarsbreytingu hjá henni…

eins og sjá má er hún hér mjög einbeitt að hjálpa pabba að setja upp jólatréð. Vaka er hinsvegar líklega ennþá hrjótandi einhversstaðar.

En jæja annars vil ég bara óska ykkur öllum gleðilegra jóla og vonast til að sjá ykkur sem lesið þetta sem mest í fríinu. :)

22.12.2006


Hvað er eiginlega að ykkur? Allir að farast úr jólastressi og þið tvær liggið bara og hrjótið eins og prinsessurnar á bauninni? Gerið eitthvað gagn!!
Þetta eru án efa lötustu kettir í heiminum… ég ætla að gefa þeim hengirúm í jólagjöf. Það var þó allavegana hægt að svipta Týra sjálfsvirðingunni með því að nota hann sem hreindýr..

22.12.2006

Í gær (fyrradag fyrst komið er yfir miðnætti) sá ég um jólaglögg heimspekinema þar sem jólaglögg/bjór var drukkinn og þessu blessaða tímariti var dreift. Mæting hefði sosem mátt vera betri, en þetta var annars fínt.
Þar bar þó líklega hæst að ég hitti skapara www.samkynhneigdurhommi.blogspot.com og ræddi við hann um þessa frægu síðu. Hann sagði mér að fólk væri alltaf að ræða við sig um þetta og að hann hefði m.a. verið beðinn um að vera með uppistand hjá Samtökunum 77 hahahah.
Annars voru alveg 5 kassar af bjór afgangs… hver vill eiga?

20.12.2006

Ég er farinn að lúlla.

19.12.2006

Jeeeei.
Blaðið sem ég ritstýrði er komið úr prentun. Ég fæ það í hendurnar á morgun. \o/

18.12.2006

Jæja lesendur góðir…

hver er uppáhaldstörtleskallinn ykkar?

18.12.2006

Kvót vikunnar

“Manni finnst bara að skynbærar skepnur eigi að fá spjallþætti, bjánar eiga ekki að fá fúlgur fyrir að deila bjánaskap sínum, þar sem hann kemur fram á endanum hvort eð er. Ég næ aldrei að fela minn og ekki fæ ég neitt borgað!” -Hjölli


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.