Archive for nóvember, 2006

22.11.2006

Frá því fyrir svona 2 árum þá get ég ekki farið að sofa án þess að það sé e-ð í gangi í sjónvarpinu/tölvunni minni. Annars þarf ég að hlusta á sjálfan mig hugsa.

Ég hata að hlusta á sjálfan mig hugsa.

Það er eins og að þurfa að hlusta á rausið í gamalli frænku sem maður hittir í jólaboði einusinni á ári.

Þetta er eitthvað sem framtíðareiginkona mín þarf að lifa með, því miður. =/

22.11.2006

Egill var einn í heiminum

19.11.2006

Jeg vil þakka þeim sem heiðruðu mig með nærveru sinni í gær fyrir skemmtilegt kvöld. Þetta var mjög gaman.
Það var líka mjög gaman að labba heim um hánótt í óendanlegu magni af snjó. Það var sérlega fallegt og rómó og minnti mig á skemmtilega tíma hér á árum áður hohoho.

Lag dagsins: Dillinger Escape Plan – Clip The Aphex…Accept Instruction

18.11.2006

partí hjá mér í kvöld

allir velkomnir

jeeeei

annars ætla ég að taka undir með krumma hvað varðar þetta

16.11.2006

vá.. ég var að horfa á Sigtið.. eins og ég hafði mikla fordóma fyrir þessum þáttum fyrst þá verð ég bara að segja að mér finnst þeir orðnir mjöög fyndnir.

Annars fékk ég bréf frá henni Hildi minni í Taiwan (s.s. bréf í pósti)…það gladdi mig mjög, og ég fattaði að það eru svona 10 ár síðan ég fékk bréf í pósti síðast sem var ekki gluggapóstur. Maður er alveg búinn að gleyma því hversu gaman það er að fá alvöru bréf, frekar en einhverja ímeil vitleysu. Helvítis tæknisamfélag.

Ég ætla að hætta að nota internetið og senda bara bréf í pósti til vina minna héðan í frá. Þaðan færi ég mig svo yfir í bréfadúfur.

10.11.2006

hahahahhaha sápuóperur…

hahahahahhahahhh

10.11.2006

jæja minn langlífi samsung sími (sem ég fékk í tvítugsafmælisgjöf) virðist vera á leiðinni að gefa upp öndina… af einhverjum ástæðum eyddust öll númer úr símaskránni, og svo nokkrar hringingar, þar á meðal sú venjulega, þannig að núna þarf ég að heyra einhver óþolandi lög í hvert skipti sem hann hringir. *sorg*
vinsamlegast hættið að hringja í mig

8.11.2006

Snjór.

:-)

7.11.2006

vægi: 0%

>:-|


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.