Afhverju er það yfirleitt þannig með heimspekirit og kenningar, að þeir sem setja fram kenningarnar geta að einhverjum ástæðum nánast aldrei komið þeim frá sér á mannamáli, og þær bækur sem útskýra kenningarnar gera það yfirleitt miklu betur en ritin sjálf?
Archive for nóvember, 2006
29.11.2006
jei. Desember á föstudaginn.
ég elska desember eins og líklega flestir aðrir.. og alveg extra mikið núna þar sem ég fer bara í eitt próf (búinn í hinum tveim kúrsunum).
hann Hrafn vinur minn hatar jólin. og af mjög skiljanlegum ástæðum
Hann vinnur sem kokkur á Lækjabrekku, og í nóvember á hverju ári byrja jólahlaðborð einhverntíman um miðjan nóvember.
Og þar sem það er mikil pressa á þessum tíma þá er hann að vinna mun meira en venjulega, og þarf þessvegna að vera með jólalög í eyrunum og einhverja jólastemningu í kring um sig 13 tíma á dag… það ættu að vera einhver lög gegn þessu….
27.11.2006
Ég hef komist að því í dag að það að draga andann djúpt og telja upp að 10 er gjörsamlega gagnslaus aðferð til að hemja stjórnlausa bræði yfir tilgangslausum hlutum. Sá sálfræðingur sem fann upp á því er bjáni.
Það er mun gagnlegra að öskra bara úr sér líftóruna og kýla í hluti.
26.11.2006
Alvarleg, samfélagsleg spurning: afhverju fílar fólk 21. aldarinnar, (þá er ég að tala um sjálfan mig + fjölmarga aðra) svona tónlist, og svona húmor? (ps. besta lag + besta stuttmynd seinni tíma)
Síðustu nótt dreymdi mig fallegasta draum sem mig hefur dreymt á ævi minni. Í honum var ég hamingjusamari og glaðari en ég hef verið frá því ég var u.þ.b. 11 ára. Líf mitt héðan í frá mun miðast við það að endurupplifa þennan draum.
Say! do you waant to goo see a mooovie? I’m feeling fat, and sassy!
Jula varer Helt til Påske!
Jula varer Helt til Påske!
yaaaay!
racoo?
22.11.2006
Sökum uppgangs í íslenskri dagskrárgerð/kvikmyndagerð undanfarið vorum ég og Fúsi (sem lék Baldur í Benjamín Dúfu) að plana endurkomu hans á stóra tjaldið í myndunum Benjamín Dúfa 2: The Resurrection og Benjamín Dúfa 3: Die Baldur Die.
Ég held þetta geti varla klikkað… einhver sem vill vera með?
