Archive for júlí, 2006

12.7.2006

mér finnst skerí hvað maður þekkir sjálfan sig í raun lítið.. t.d. ef maður ímyndar sér einhverjar aðstæður sem maður gæti lent í og er að velta fyrir sér hvernig maður myndi bregðast við, þá veit maður það ekki alltaf.

annars hefur heimsóknafjölodi hingað snarlækkað og það kommentar enginn lengur.. ég er hættur að nenna þessu

10.7.2006

kominn heim!
Afar áhugaverð ferðasaga + fullt af myndum kemur inn á næstu dögum…

annars erum við búin að eignast tvo litla kettlinga… það er ekki liðnir nema u.þ.b. 4 mánuðir frá gæludýrarassíu pabba og mömmu hérna heima, og við erum strax kominn með ný dýr… undarlega undarlega heimili
annars eru þær mjög sætar.. tvær læður (systur), og ekki nema örfárra vikna gamlar. ég veit samt ekki hvort ég eigi að treysta þeim strax því eins og allir vita eru kettir vondir, en við sjáum til..

æjá.. allir sem vilja sjá frækið viðtal við mig og Auði í Ísland í dag síðastliðinn þriðjudag um soðið piss o.fl. fara hér… reyndar neyðist maður fyrst til að horfa á eitthvað 8 mínútna viðtal um mansal.. en það er þess virði! eða eitthvað

9.7.2006

Þetta er líklega það fyndnasta sem ég hef heyrt.. þessi gaur er svo óendanlega góður…. allir að hlusta á hvert einasta lag á þessari síðu.

Bjarni þetta á sérstaklega við um þig!

6.7.2006

jæja frakkar og ítalir bara í úrslit… það skal tekið fram að ég spáði frökkum heimsmeistaratitlinum í byrjun móts.. engu að síður finnst mér random að þeir skuli hafa komist þangað

annars erum við í köben núna í íbúðinni hans Péturs (tölvan hans með íslenskt lyklaborð og allt).. búin að taka því mjög rólega undanfarna daga og ég mun líklega gera það áfram þangað til ég kem heim á sunnudaginn… annars er þetta búið að vera frábær ferð, og ég skal skrifa almennilega ferðasögu þegar ég kem heim ef ég nenni.


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.