Archive for júlí, 2006

28.7.2006

vá… ég var að horfa á V for Vendetta (a.k.a. Eiríkur Fjalar fer til London).. geðveik mynd! og líklega svona þriðja myndin sem ég sé á þessu ári.. verð að farað hisja upp um mig buxurnar

annars á ég bara þrjá daga eftir af vinnunni.. ég ætla að halda upp á það með að vera fullur alla helgina.

ps. vill einhver koma með mér og auði á Innipúkann? allavegana á föstudeginum… ekkert sem ég vill voða mikið sjá hina dagana

25.7.2006

hahahahah ég er að horfa á Beverly hills… ég elska hvað þessir þættir eru með mikið 80′s hangover.. allir með ógeðslega stórt hár, húsþak-laga augnbrúnir og kringlótt gleraugu
þetta æðislega gítarsóló í upphafsstefinu er líka alveg að gera sig… nýju uppáhaldsþættirnir mínir

ps. Luke Perry er æði

24.7.2006

jæja gleðin í vinnunni hættir aldrei.. þessa síðustu daga mína í vinnunni verð ég settur í það að slá gras út um allan bæ á einhverri fáránlega ofvaxinni slátturvél sem lítur út eins og einhver framtíðarskriðdreki.. passið ykkur!

23.7.2006

afhverju hafa golfarar alltaf einhvern helvítis hanska hangandi út úr rassgatinu á sér?

23.7.2006

Ég er þunnur

ps. mörgæs í slökkviliðsbíl. Ennþá.

23.7.2006

Ég er fullur

ps. mörgæs í slökkviliðsbíl.

21.7.2006

ég þarf líklega að fara í einhverskonar uppskurð á hægri fæti. Töff.

18.7.2006

í kvöld fór ég í bólíng með fólki úr vinnunni… það er mjög gaman í bóóólíng fyrir utan það hvað ég er ömurlegur í bóóóóólíng.
Það verður einhver frestur á að myndirnar frá hróaskeldu komi inn þar sem krummi (sem er verndari þeirra) er að vinna næstu 3 árin samfleytt.. en þetta kemur á endanum!

ps. fyrir þá sem eru orðnir pirraðir á að ég svari aldrei á msn er það því tölvan útí skúr loggar sig alltaf inná óumbeðin.. hefur þetta orðið til margra vinaslita en ég hef ákveðið að binda endi á það hér.

17.7.2006

jæja lífstakmark mitt núna er að lifa þetta af og græða einhvernveginn á því..
en já ég er búinn að vera að flakka e-ð um netið og lesa um alheiminn og stærð hans.. þetta er það sem ég komst að (allt á ensku):

Sólkerfið okkar er í “milky way” vetrarbrautinni, og þvermál hennar er um 100.000 ljósár (946,052,840,487,900,000 km).

The milky way er svo hluti af einhverju sem heitir “the local group”, sem er hópur af um 30 öðrum álíka stórum vetrarbrautum. Þvermál þessa hóps er svo um 10.000.000 ljósár.

Þessi hópur er svo hluti af einhverju sem kallast “the virgo supercluster” sem inniheldur nokkur hundruð svona vetrarbrautahópa. “The virgo supercluster” er svo um 200 milljón ljósár að þvermáli.

Talið er að það séu um 10 milljón svona superclusterar í alheiminum.

svo er ég að svekkja mig yfir því að þurfa að labba í vinnuna á morgnanna…

16.7.2006

nei hæææææ
já floooott


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.